Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins
Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins uppfyllir kröfur jafnlaunastaðals ÍST 85:2012 og hlaut fyrst vottun árið 2023
Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins nær til allra starfsmanna Tónskóla Sigursveins. Meginmarkmið þess er að tryggja að starfsfólk óháð kyni njóti sömu launakjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Kerfið inniheldur stefnuskjöl, verklagsreglur, gátlista og form (eyðublöð). Öll skjöl bera númer sem vísa til númera greina jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.
Jafnlaunakerfið hefur verið skjalfest og þannig hefur umgjörð verið sköpuð til að viðhalda því, tryggja stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð.
Meginstoðir jafnlaunakerfisins eru fimm
Jafnlaunastefna
Skipulagning
Innleiðing og starfræksla
Gátun
Rýni stjórnenda
Vottun kerfisins er til þriggja ára í senn en vottunaraðili mun fylgja vottun eftir með árlegum eftirlitsúttektum.
Vilji starfsfólk eða aðrir hagsmunaaðilar koma erindum í tengslum við jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins á framfæri skulu þeir fylla út eftirfarandi eyðublað