Skip to main content Skip to footer

Skólareglur

Skólareglur

1. Stundvísi er áskilin. Tilkynna ber forföll með góðum fyrirvara.
Forföll nemenda undir 18 ára aldri skulu tilkynnt af foreldrum/forráðamönnum.

2. Almenn háttvísi er áskilin.

3. Nemandi komi vel undirbúinn í tíma.

4. Góð umgengni og góð meðferð hljóðfæra er áskilin. 

5. Nemendur skulu ganga vel og snyrtilega um skólann og eigur hans.

6. Mæti nemandi ekki í tíma hefur kennari samband við foreldra/forráðamenn.

7. Endurteknar fjarvistir geta varðað brottvikningu úr skólanum. Ef nemandi er fjarverandi í meira en 3 vikur án skýringa missir hann skólaplássið.

8. Nemanda ber að mæta á alla tónleika og í alla hóptíma (samspil, hljómsveit, tónfræði) sem honum eru ætlaðir.

9. Snyrtilegur klæðnaður og prúðmennska nemenda skal  viðhöfð á tónleikum skólans. Tónleikagestir sýni flytjendum kurteisi og sitji út tónleika. 

10. Snjalltækjanotkun í tímum er ekki heimil nema tækin séu nýtt vegna kennslunnar. Símar skulu vera þannig staðsettir að þeir trufli ekki kennslu (t.d. í tösku eða úlpuvasa og á hljóðlausri stillingu).

11. Skólanum er ekki skylt að bæta upp einstakar kennslustundir er kunna að falla niður vegna veikinda kennara. Verði þau hins vegar langvinn, ber skólanum að útvega forfallakennara.

12.Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort þeir sendi börn sín í skólann eða ekki í slæmu veðri, alveg eins og í grunnskólum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins gefur út tilmæli vegna veðurs og röskunar á skólastarfi.